NOTE: This article is more than 5 years old.
Ný viðskiptaáætlun sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn komin út
Á grundvelli nýrrar framtíðarstefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir
íslenskan útflutning, sem Íslandsstofa kynnti síðastliðið haust, hefur
sendiráðið í Kaupmannahöfn unnið greiningu á danska markaðnum, þróun
viðskipta á milli landanna og tækifærum fyrir íslenskt atvinnulíf.
Áhersla var lögð á að skilgreina hvernig sendiráðið getur lagt sitt af
mörkum við framkvæmd nýju stefnunnar, kortleggja þau verkefni sem fram
undan eru og tryggja samhljóm við starf Íslandsstofu.
Hér gefst
áhugasömum kostur á að kynna sér þessa nýju viðskiptaáætlun sendiráðs
Íslands í Kaupmannahöfn.